Fréttastofa RÚV
Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs hjá Samtökum iðnaðarins, varar við því að landsmenn séu bláeygir og værukærir gagnvart þeirri stöðu sem komin er upp í orkumálum á alþjóðavísu. Henni þykir ólíklegt að olíukrísan muni ekki hafa áhrif hérlendis. „Það blikka rauð viðvörunarljós allt í kringum okkur“ Sigríður bendir á að íslenskt samfélag gangi að miklu leyti fyrir olíu, eða um 40 prósent af hagkerfinu. „Við erum ekki eins óháð olíu og margir telja. Það sem skiptir mestu máli kannski núna er það sem við höfum lengi talað fyrir, að flýta svokölluðum þriðju orkuskiptum, það er orkuskiptum í samgöngum.“ Samtök iðnaðarins leggja áherslu á að allra leiða sé leitað til að flýta innlendri orkuframleiðslu. „Fyrir efnahagslegt öryggi og þjóðaröryggi landsins,“ segir Sigríður.
Go to News Site