Fréttastofa RÚV
Andrew Emerald, hálffimmtugur bandarískur karlmaður, hefur verið handtekinn fyrir að hóta Donald Trump dauða í alls átta færslum á Facebook. Hann birti færslurnar allar á síðasta ári. Í einni þeirra, sem dómsmálaráðuneytið hefur birt, segir Emerald að verði Trump ekki dáinn og grafinn fyrir 2026 muni hann sjá til þess að svo verði. Í annarri hefur Emerald uppi stóryrði um að brenna Mar-a-Lago til grunna, aðsetur Trumps á Flórída, og í þeirri þriðju hótar hann að halda til höfuðborgarinnar Washington og vega Trump og fjölda fylgismanna hans með sverði. Þá kallar Emerald innanríkishryðjuverkamenn. Emerald veifaði sverði og þvertók fyrir að koma út þegar alríkislögreglumenn komu með handtökuheimild að heimili hans í Massachusetts. Hann lét að lokum undan eftir tiltal lögreglu. Emerald hafði einnig í hótunum við Trump árið 2018 og var yfirheyrður vegna þess. Hótanir af þessu tagi geta kostað Emerald allt að fimm ára fangelsi. Hársbreidd munaði að Trump týndi lífi í skotárás á kosningafundi í Pennsylvaníu í júlí 2024, þar sem einn fundargestur varð fyrir skoti og lést. Lífi Trumps hefur iðulega verið hótað í færslum á samfélagsmiðlum. Til að mynda hlaut karlmaður búsettur í Virginíu-ríki yfir tveggja ára fangelsisdóm í mars fyrir slíkt athæfi.
Go to News Site