Collector
Trump ítrekar áframhaldandi árásir sem færi Íran aftur til steinaldar | Collector
Trump ítrekar áframhaldandi árásir sem færi Íran aftur til steinaldar
Fréttastofa RÚV

Trump ítrekar áframhaldandi árásir sem færi Íran aftur til steinaldar

Donald Trump Bandaríkjaforseti segir nær öllum markmiðum stríðsins gegn Íran náð, hótaði áframhaldandi árásum næstu tvær til þrjár vikur og ítrekaði að orkuver væru áfram skotmörk Bandaríkjahers, semji Íranir ekki. „Á næstu tveimur til þremur vikum ætlum við að færa þá aftur til steinaldar, þar sem þeir eiga heima,“ sagði Trump. Bent hefur verið á að árásir á borgaralega innviði séu brot á lögum um stríð og geta verið ígildi stríðsglæpa. Trump lét þessi orð falla í 19 mínútna sjónvarpsávarpi í kvöld, því fyrsta frá upphafi stríðsins, þar sem hann hrósaði Bandaríkjaher fyrir skjóta og afdráttarlausa yfirburðasigra í stríðinu, sem hefur staðið í fjórar vikur. Fátt nýtt þótti koma fram í ræðu forsetans. Trump sagði annað eins sjaldan hafa sést, flota og flugher Írana hefði verið eytt og flestir leiðtogar landsins fallnir í valinn. Vitað er að æðsti leiðtoginn Ali Khamenei var drepinn á fyrsta degi, 28. febrúar. „Við höfum öll spil á hendi, þeir engin,“ sagði forsetinn. Trump sagði að Bandaríkin stefndu að því að knésetja Íransher, binda enda á stuðning klerkastjórnarinnar við svæðisbundna vopnaða hópa og koma í veg fyrir að hún gæti komið sér upp kjarnorkusprengjum. Alþjóðakjarnorkumálastofnunin sem starfar á vegum Sameinuðu þjóðanna og margir eftirlitsmenn hafa sagt að það væri ekki yfirvofandi. Trump hvatti jafnframt þau ríki sem fá olíu gegnum Hormússund að sýna hugrekki og hertaka það. Trump ávítaði ríki Evrópu aftur fyrir að styðja ekki stríðsreksturinn en þakkaði samherjum Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum, Ísrael, Sádi Arabíu, Katar, Sameinuðu arabísku furstadæmunum, Kúveit og Barein, og hét því að ekkert illt henti þá. Trump virðist ekki hafa náð að róa fjárfesta með orðum sínum. Hráolíuverð hækkaði um þrjú til fjögur prósent eftir að ræðu hans lauk í kvöld en hafði áður verið á niðurleið. Brent-Norðursjávarolía fór upp í 105,55 dali tunnan og West Texas Intermediate upp í 103,16. Ísraelsk yfirvöld sögðu loftvarnarkerfi hafa brugðist við eldflaugaárás frá Íran skömmu eftir að Trump lauk máli sínu. Í gær sagði utanríkisráðuneyti Írans ekkert hæft í þeim orðum Trumps að forsetinn Masoud Pezeshkian hefði farið fram á vopnahlé. Auk þess væru kröfur Bandaríkjanna algerlega óraunhæfar. Trump hóf ávarpið á árnaðaróskum til NASA og geimfaranna fjögurra sem eru lagðir upp í langferð umhverfis tunglið. Artemis 2 leiðangurinn lagði upp frá Kennedy-geimferðamiðstöðinni í Flórída í kvöld. „Þetta var aldeilis eitthvað,“ sagði Trump. Upptöku af ræðunni má sjá hér fyrir neðan:

Go to News Site