Fréttastofa RÚV
Enginn slasaðist í umferðaróhappi í Kópavogi í gærkvöld eða nótt að því er segir í morgunskeyti Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu sektaði nokkra ökumenn fyrir ýmis brot.RÚV / Vilhjálmur Þór Guðmundsson Lögreglu þar í bæ barst einnig tilkynning um ónæði af hávaða við framkvæmdir. Lögreglan brást einnig við ótilgreindu slysi í Hafnarfirði. Númer voru klippt af ótryggðum bíl í Árbæjarhverfi. Auk þessa var ökumaður sektaður fyrir að aka yfir gatnamót á rauðu ljósi miðsvæðis í Reykjavík, annar fyrir of hraðan akstur í Hafnarfirði og sá þriðji fyrir að nota ekki öryggisbelti við akstur í Árbænum. Einnig þarf annar ökumaður að greiða sekt fyrir að aka þar án réttinda.
Go to News Site