Fréttastofa RÚV
Grímseyingar tóku sig til og gáfu matargjöfum á Akureyri og nágrenni 175.000 kr til þess að kaupa páskaegg. Þann 18. mars óskaði Sigrún Steinarsdóttir, forstöðukona matargjafa á Akureyri eftir stuðningi til þess að kaupa páskaegg. Eggin eru hugsuð fyrir börn þeirra sem þurfa á mataraðstoð að halda. Ekki stóð á svörum frá Grímseyingum sem telja sig einkar gjafmilda. Bæði Kiwanisklúbburinn í eynni, sem og kvenfélagið stukku til og gáfu samtals 175.000 kr. „Við bara viljum láta gott af okkur leiða. Þetta eru félagasamtök sem að, bæði kvenfélagið og Kiwnais, sem eru að styrkja þá sem minna mega sín. Við erum svo lánsöm hérna í eyjunni að við þurfum ekki mikið að styrkja hvert annað í svona peningagjöfum eða peningastyrkjum, þannig þetta er okkur bara nærtækt. Þetta er bara nærsamfélagið á Akureyri,“ sagði Anna María Sigvaldadóttir, talskona kvenfélagsins í Grímsey. Fyrir þessa upphæð ætti að vera hægt að kaupa þó nokkur páskaegg en kílóaverð á Bónus eggjum er um 4.500 krónur. Þessi fjárhæð ætti því að duga fyrir rétt tæplega 40 kílóum af páskaeggjum. „Það hefur verið hægt að kaupa eitthvað af eggjum frá Grímseyingum fyrir 175.000.“
Go to News Site