Fréttastofa RÚV
Leik Meistarar meistaranna í fótbolta kvenna var frestað vegna snjókomu. Breiðablik átti að mæta FH klukkan 14:00 en leiknum var frestað til 14:15. Leikið er á Kópavogsvelli. Dómarateymi leiksins tók ákvörðunina. Tveir traktorar vinna að því að ryðja snjó af vellinum en snjó hefur kyngt niður. Leikurinn hófst nú 14:15 en enn er mikill snjór á vellinum. Guðni Eiríksson þjálfari FH sagðist vona að enginn leikmaður myndi meiðast í dag.
Go to News Site