Collector
Nýir kjörkassar teknir í notkun í vor sem eru svartir og úr plasti | Collector
Nýir kjörkassar teknir í notkun í vor sem eru svartir og úr plasti
Fréttastofa RÚV

Nýir kjörkassar teknir í notkun í vor sem eru svartir og úr plasti

„Þetta eru sérstakir kjörkassar, framleiddir sem slíkir. Aðalbreytingin er sú að þeir eru svartir á litinn og eru úr plasti,“ segir Ástríður Jóhannesdóttir, framkvæmdastjóri Landskjörstjórnar. „Við erum að segja skilið við trékassana sem við höfum notað hingað til og hafa gegnt sínu hlutverki mjög vel. Það hefur verið ákveðið ákall frá þeim sem vinna við kosningarnar að fá léttari kassa og sem staflast betur, þannig það fari minna fyrir þeim þegar þeir eru ekki í notkun. Við höfum orðið við þessu ákalli,“ segir Ástríður. Ástríður segir að um 900 kassar hafi verið pantaðir og heildarkostnaður hlaupi á allt að 15 milljónum með öllu - kössunum sjálfum, merkingum og nýjum innsiglum. Kjósendum mæta nýir kjörkassar í sveitarstjórnarkosningunum í vor - þeir eru úr plasti og eiga að leysa viðarkassana af hólmi og létta störf kjörstjórna. Kostnaður við stakan trékassa eins og hafa verið notaðir til þessa var í kringum 60-80 þúsund. „Þessir kassar eru frábrugðnir að því leyti að þeir eru ekki með sérstökum lás heldur er þeim læst og innsaglað með sérstökum innsiglum sem eru eins og strappar. Sem eru þræddir hér á fjóra staði, þeim er lokað og innsiglað hér á hverri hlið,“ segir Ástríður jafnframt. „Þegar kjósandinn er búinn að greiða atkvæði setur hann atkvæði sitt niður í kassann. Þegar það er skipt um kassa þá er þessari rauf lokað og hún innsigluð líka. Þá er kassinn lokaður og læstur. Þó að við séum ekki með lás, þá er hann öruggur,“ bætir hún við. Landskjörstjórn vinnur nú að því að dreifa nýju kössunum um landið. Þeir eiga að vera komnir til sýslumanna þegar utankjörfundaatkvæðagreiðsla hefst um miðjan apríl og til sveitarfélaganna fyrir kjördag. Núna finnst einhverjum sem hafa sett atkvæði oft í kjörkassa, þessir gömlu trékassar með mikla sögu og menningu. Hvað viltu segja við það fólk? „Að vera viðbúið fyrir breytingar. Ég get alveg tekið undir það. Kassarnir sem við erum að nota í dag og þekkjum. Það er ákveðin nostalgía sem fylgir þeim og þeir hafa verið mjög góðir en þeir hafa líka verið dálítið þungir.“ Hvað verður gert við gömlu kassana? „Það liggur ekki alveg fyrir hvað verður gert við þá. Þeir eru í vörslu sveitarfélaganna og við viljum gjarnan að þeir verði til enn sem komið er meðan við erum að sjá hvernig reynslan verður af þessum nýju í vor. En við erum opin fyrir hugmyndum um það, við notum þá hérna hjá landskjörstjórn fyrir kaffiborð eða vinnuborð, þannig það er ýmislegt hægt að finna út.“

Go to News Site