Collector
Kyngir niður í Kópavogi og leik frestað | Collector
Kyngir niður í Kópavogi og leik frestað
Fréttastofa RÚV

Kyngir niður í Kópavogi og leik frestað

Leik Breiðablik og FH í meistarar meistaranna í fótbolta var frestað um dag vegna snjókomu. Leikur Fylkis og KFA í bikarkeppni karla í fótbolta var færður innanhúss. Báðir leikir voru byrjaðir, en leikur Breiðabliks og FH í leik meistarar meistaranna hófst ekki fyrr en 15 mínútum á eftir áætlun vegna snjókomu. Þegar reynt hafði verið að spila í átta mínútur var leikurinn blásinn af. Allar línur vallarins sáust ekki fyrir snjó og aðstæður á vellinum orðnar erfiðar. Leiknum hefur verið frestað þar til á morgun klukkan 14:00. Dómarateymi leiksins tók ákvörðunina. Tveir traktorar unnu að því að ryðja snjó af vellinum en snjó kyngdi niður. Ákveðið var að keppa í dag þar sem liðskonur liðanna eru mögulega á leið í U19 og A-landsliðsverkefni. Leik Breiðabliks og FH í Meistarakeppni kvenna í fótbolta var hætt vegna snjókomu og leiknum frestað til morguns. Bikarleikur Fylkis og KFA var hins vegar færður innandyra eftir að leikurinn var hafinn. Guðni Eiríksson þjálfari FH sagði í viðtali fyrir leik vona að enginn leikmaður myndi meiðast í dag. Styrktarleikur Kolfinnu Leikurinn er styrktaleikur til stuðnings Kolfinnu Rán Færseth fótboltastelpu, fæddri 2013. Með leiknum vilja félögin sýna samstöðu og leggja sitt af mörkum til að styðja Kolfinnu Rán og fjölskyldu hennar. Allur ágóði af leiknum rennur óskiptur til Kolfinnu. Kolfinna hefur lokið 16 lyfjameðferðum og á tvær eftir. Í desember síðastliðnum fór hún til Svíþjóðar í aðgerð þar sem lærleggurinn var fjarlægður alveg upp í mjaðmakúlu og settur íhlutur í staðinn. Jafnframt þurfti að taka tvo af stóru vöðvunum framan á lærinu og framundan er því mikil endurhæfing bara við að læra að ganga aftur. Hvað gerðist í Árbænum? Fylkir var kominn yfir, 1-0 á móti KFA í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarkeppni karla í fótbolta á Árbæjarvelli. Þar var reynt aðeins lengur að spila, þar sem austfirðingar eiga flug heim síðar í dag. Þegar útséð var með að hægt væri að spila í snjónum var leikurinn stoppaður og nú eru leikmenn liðanna á leið í Skessuna í Hafnarfirði þar sem leiknum verður fram haldið. Fréttin hefur verið uppfærð.

Go to News Site