Vísir
Fyrir svo sem hálfri öld, þegar ég var krakki, var föstudagurinn langi virkilega langur og leiðinlegur dagur. Þetta var á tímum þegar það var bara ein útvarpsstöð á Íslandi, RÚV og mig minnir að á þessum degi hafi verið útvarpað þögn í bland við hátíðlega þögn, fram eftir degi. Það mátti ekki spila. Það mátti ekki leika sér og það var ekkert í sjónvarpinu nema stillimynd. Maður sat í sparifötunum og beið þess að dagurinn liði. Eldra fólk minnti mann svo á það reglulega að við ættum að nota daginn til að hugleiða kvöl og pínu Krists.
Go to News Site