Collector
Skorað á tveimur völlum í sama leiknum — aðeins gerst einu sinni áður? | Collector
Skorað á tveimur völlum í sama leiknum — aðeins gerst einu sinni áður?
Fréttastofa RÚV

Skorað á tveimur völlum í sama leiknum — aðeins gerst einu sinni áður?

Í dag skoraði Fylkir á tveimur mismunandi völlum í einum og sama leiknum. Þetta hefur gerst að minnsta kosti gerst einu sinni áður, er FHL skoraði á tveimur völlum gegn Hamar árið 2020. Leik Fylkismanna gegn KFA í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta var hætt vegna snjókomu. Hann hófst á Fylkisvelli í Árbæ en var færður í Skessunni, knatthús FH-inga í Hafnarfirði. Boltinn fór í net KFA manna á 2. mínútu í Árbænum þegar Milan Jelovac í liði austanmanna gerði sjálfsmark. Gunnar Oddur Hafliðason dómari leiksins flautaði leikinn af um stund á 24. mínútu. KFA menn vildu skiljanlega ekki ferðast aftur í bæinn fyrir frestaðan leik. Því færðu liðin sig um set í Skessuna og þar skoraði Guðmundur Tyrfingsson á 32. mínútu. Þannig lauk leiknum og Fylkismenn eru komnir áfram í 16-liða úrslit. Mörkin tvö má sjá hér að neðan. Eitt í snjó og hitt á þurru gervigrasi. Í dag gerðist það að Fylkir skoraði mark á tveimur mismunandi völlum í einum og sama fótboltaleiknum. Leik þeirra gegn KFA í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla var færður úr Árbæ í Hafnarfjörð. Slíkt hefur að minnsta kosti gerst einu sinni áður. Hvað gerðist hjá Hamar og FHL? Í raun var uppi svipuð staða þegar þetta gerðist áður. Í þeim leik var einnig lið frá austan sem vildi klára leikinn og sleppa við ferðalag síðar. Árið 2020 þurfti að færa leik Hamars og Fjarðabyggðar/Hettis/Leiknis í 2. deild kvenna í fótbolta vegna rigningar. Gestirnir að austan leiddu 0-1 en Grýluvöllur í Hveragerði var á floti og því var leikurinn stöðvaður á 18. mínútu. Frétt Sunnlenska.is um leikinn Leikurinn var færður í Kórinn í Kópavogi og hófst tveimur klukkutímum síðar. Búningar leikmanna fóru í þurrkara og svo fór leikurinn aftur af stað. FHL bætti við þremur mörkum í Kórnum og skoraði því bæði í Hveragerði og Kópavogi í sama leiknum.

Go to News Site