Collector
Búið að loka bæði Fjarðarheiði og veginum um Fagradal | Collector
Búið að loka bæði Fjarðarheiði og veginum um Fagradal
Fréttastofa RÚV

Búið að loka bæði Fjarðarheiði og veginum um Fagradal

Fjarðarheiði og veginum um Fagradal hefur verið lokað vegna óveðurs. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á Austurlandi varð smávægilegur árekstur á veginum um Fagradal. Engin slys urðu á fólki. Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi hjá Landsbjörgu, segir björgunarsveitina Ársól á Reyðarfirði vera á leiðinni í Fagradal. Snjó blásið burt af Fjararheiði, myndin er úr safni.RÚV / Rúnar Snær Reynisson Annars hefur dagurinn hjá björgunarsveitum verið tiltölulega rólegur. Björgunarsveitin Tindur á Ólafsfirði var kölluð út í morgun þar sem þakplötur og annað losnaði í vindi. Þæfingsfærð hefur verið á Snæfellsnesi í dag og í hádeginu var björgunarsveit kölluð út í hádeginu vegna bíls sem var fastur við Öndverðarnes.

Go to News Site