Fréttastofa RÚV
Verzlunarskóli Íslands sigraði Menntaskólann á Egilsstöðum 46-19 í seinustu viðureign undanúrslita Gettu betur. Verzlunarskólinn hefur þar með tryggt sér sæti í úrslitaviðureigninni gegn Menntaskólanum í Reykjavík. Verzló leiddi með 18 stigum gegn 14 eftir hraðaspurningar og lét skólinn ekki forystuna af hendi það sem eftir var keppni. Úrslitakeppnin fer fram í Háskólabíói föstudaginn 10. apríl, von er á æsispennandi viðureign. Menntaskólinn í Reykjavík er sigursælasti skóli keppninnar með 23 sigra, Verzlunarskólinn hefur sigrað keppnina tvisvar sinnum. Skólarnir mættust seinast í úrslitum keppninnar árið 2010, það ár bar MR sigur úr bítum.
Go to News Site