Collector
Haukar í undanúrslitin og mæta FH | Collector
Haukar í undanúrslitin og mæta FH
Fréttastofa RÚV

Haukar í undanúrslitin og mæta FH

Haukar eru komnir áfram í undanúrslit Íslandsmóts karla í handbolta eftir 32-24 sigur gegn Aftureldingu. Það verður Hafnarfjarðarslagur í undanúrslitum þar sem FH-ingar bíða. Fyrsti leikur er 7. apríl. Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik og Haukar leiddu með tveimur mörkum, 15-13, í hálfleik. Haukar komust í fjögurra marka forskot snemma í seinni hálfleik, 18-14. Munurinn varð svo sex mörk og Mosfellingar náðu í raun aldrei að ógna neinni endurkomu. Mestur varð munurinn ellefu mörk, 29-18, þegar níu mínútur voru eftir. Að lokum vannst öruggur átta marka sigur. Freyr markahæstur með níu Freyr Aronsson leiddi sóknarleik heimamanna með níu mörk og tvær stoðsendingar. Hergeir Grímsson og Skarphéðinn Ívar Einarsson voru með fjögur mörk hvor. Aron Rafn Eðvarsson varði sjö skot og Grétar Ari Guðjónsson fjögur. Í Aftureldingu skoraði Árni Bragi Eyjólfsson fimm mörk og þeir Kristján Ottó Hjálmsson og Harri Halldórsson voru með fjögur mörk hvor. Einar Baldvin Baldvinsson varði sex skot.

Go to News Site