Collector
Stríðsmálaráðherrann víkur yfirmanni landhersins til hliðar | Collector
Stríðsmálaráðherrann víkur yfirmanni landhersins til hliðar
Fréttastofa RÚV

Stríðsmálaráðherrann víkur yfirmanni landhersins til hliðar

Bandaríski stríðsmálaráðherrann Pete Hegseth hefur beðið hershöfðingjann Randy George að stíga umsvifalaust til hliðar sem herráðsforingi landhersins og fara á snemmbúin eftirlaun. Ástæða brottvikningarinnar er ekki ljós en CBS hefur eftir ónafngreindum heimildarmanni að Hegseth vilji fá einhvern til starfans fylgispakari við framtíðaráætlanir hans og Donalds Trump forseta um herinn. Fjöldi háttsettra herforingja hefur verið rekinn eða hætt störfum frá því Trump tók við embætti. Hann rak Charles „CQ“ Brown, yfirmann herforingjaráðsins, án skýringa í febrúar 2025. Trump hefur einnig rekið yfirmann sjóhers og strandgæslu, æðsta yfirmann Þjóðaröryggisstofnunarinnar, varaherráðsforingja flughersins og herráðsforinginn lét af störfum þegar tvö ár lifðu skipunartíma hans. Listinn er lengri. Hegseth hefur sagt Trump velja þá leiðtoga heraflans sem honum þóknast, sem þingmenn Demókrata segja benda til stjórnmálavæðingar hersins sem eigi og hafi verið hlutlaus gagnvart stjórnvöldum.

Go to News Site