Fréttastofa RÚV
Lögregla handtók manninn þegar lestin nam staðar í Bonn.epa Þrír slösuðust lítillega þegar karlmaður varpaði litboltaboltasprengju inni í farþegalest á leið milli þýsku borganna Köln og Frankfurt. Bild segir manninn hafa mundað hníf og hótað árás. Nokkrum farþegum hafi tekist að yfirbuga hann og læsa inni á salerni þar sem hann sat uns hann var handtekinn í Bonn. Um það bil fimm hundruð farþegar yfirgáfu lestina þar.
Go to News Site