Fréttastofa RÚV
Vilji til áframhalds og styrkingar áratugalangra tengsla og gjöfulla samskipta Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum var meðal þess sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra ræddi í gær símleiðis við Christopher Landau varautanríkisráðherra Bandaríkjanna. Á vefjum bandaríska utanríkisráðuneytisins og Stjórnarráðsins íslenska segir að ráðherrarnir hafi báðir lýst áhuga á að efla tvíhliða samstarf ríkjanna. Þorgerður kveðst hafa af þunga áréttað að samstaða innan Atlantshafsbandalagsins sé mikilvægari en nokkru sinni fyrr. „Við áttum gott og hreinskiptið samtal, ekki aðeins um mikilvægi tvíhliða samskipta ríkja okkar, heldur einnig um þær viðsjár sem uppi eru í heiminum,“ segir Þorgerður Katrín. Hún sagði einnig þýðingarmikið að aukið yrði í þegar umfangsmikla viðskipta- og fjárfestingasamvinnu ríkjanna. Donald Trump Bandaríkjaforseti og utanríkisráðherrann Marco Rubio hafa gefið í skyn vilja til að yfirgefa NATÓ-samstarfið, sem þeir segja þiggja meira en það gefi. Þau Þorgerður Katrín og Landau ræddu einnig þá alvarlegu stöðu sem við blasir í Mið-Austurlöndum og Úkraínu.
Go to News Site