Collector
Bandarískar leyniþjónustur telja Írana enn búa yfir talsverðum árásarmætti | Collector
Bandarískar leyniþjónustur telja Írana enn búa yfir talsverðum árásarmætti
Fréttastofa RÚV

Bandarískar leyniþjónustur telja Írana enn búa yfir talsverðum árásarmætti

Um það bil helmingur eldflaugaskotpalla Írana er enn sagður óskemmdur, einnig mikið magn eldflauga og landið á þúsundir árásardróna á lager þrátt fyrir daglegar árásir herja Ísraels og Bandaríkjanna síðustu fimm vikur. CNN hefur þetta eftir þremur ónafngreindum heimildarmönnum sem vísa til nýlegra greininga bandarískra leyniþjónusta. Einn þeirra sagði Írana enn þá geta valdið verulegum usla um gervöll Mið-Austurlönd. Ekki er útilokað að hluti vopnabúrsins liggi óskemmdur en ónothæfur grafinn undir rústum eftir loftárásir. Leyniþjónustur segja hátt hlutfall langdrægra eldflauga meðfram ströndum Írans enn óskemmt, enda hafi Bandaríkjaher ekki gert loftárásir þar heldur einbeitt sér að skipum á hafinu. Þær flaugar eru lykillinn að þeirri ógn sem stafar af skipaumferð um Hormússund . Greining leyniþjónustanna stangast nokkuð á við orð Donalds Trump forseta sem í ávarpi á miðvikudag sagði verulega hafa dregið úr getu Írana til að skjóta á loft eldflaugum. Vopnaverksmiðjur þeirra og eldflaugaskotpallar væru rústir einar og mjög fáir uppistandandi. Leyniþjónustan segir að óneitanlega hafi dregið verulega úr hernaðarmætti Írans auk þess sem háttsettir ráðamenn liggi í valnum, þeirra á meðal æðstiklerkurinn Ali Khamenei og Ali Larijani yfirmaður öryggisráðsins.

Go to News Site