Fréttastofa RÚV
„Það eru komin svona níu ár síðan ég kom hingað síðast á leik. Þetta er orðið aðeins of langur tími,“ sagði Árni Gautur Arason fyrrverandi landsliðsmarkvörður Íslands í fótbolta þegar hann kom sem heiðursgestur á leik Rosenborgar og Vålerenga í norsku deildinni um síðustu helgi. Innslag má sjá hér fyrir neðan. Árni Gautur Arason fyrrverandi landsliðsmarkvörður Íslands í fótbolta var heiðraður á leik Rosenborgar og Vålerenga í Noregi um síðustu helgi. RÚV slóst í för með Árna Gauti sem er í miklum metum hjá Rosenborg. Árni Gautur lék með Rosenborg á árunum 1998-2003 og með Vålerenga 2004-2007. Hann varð norskur meistari öll árin sín í Rosenborg og vann meistaratitilinn líka einu sinni með Vålerenga. Árni Gautur sagði frá taugahrörnunarsjúkdómi sem hann glímir við í viðtali við RÚV í nóvember. Fullkomið augnablik til að klappa fyrir honum „Þetta er fullkomið augnablik til að gefa Árna gott klapp fyrir allt sem hann gerði fyrir Rosenborg, fyrst og fremst, en einnig fyrir Vålerenga. Þetta er frábær uppákoma og það gleður mig mikið að Árni geti verið hér í dag,“ sagði Ola By Rise sem varð aðstoðarþjálfari Rosenborg á árum Árna Gauts í liðinu. „Ég var hérna í sex ár og við unnum titilinn öll árin. Þannig að ég er bara ótrúlega sáttur við þann tíma sem ég var hérna. Ég held að ég geti sagt það að tíminn minn hjá Rosenborg hafi verið hátindur ferilsins hjá mér,“ sagði Árni Gautur. Einn besti markvörður sem hefur spilað fyrir Rosenborg „Þegar Árni kom til okkar var hann í raun hugsaður sem varamarkvörður. En hann heillaði okkur frá fyrsta degi. Hann er mjög klár og með mikla knattspyrnugreind. Hann er mjög viljasterkur og fljótur að læra. Það þarf sterkan haus til að vera markvörður á hæsta stigi. Hann las leikinn mjög vel. Hann var sterkastur á línunni, hafði frábær viðbrögð og gat varið allt markið. Hann varði oft á ótrúlegan hátt. Auk þess gerði hann mjög sjaldan mistök. Hann var líka óárennilegur einn á móti einum. Hann spilaði á mjög háu getustigi, alltaf. Við lékum í Meistaradeild Evrópu öll árin hans og hann varð því að standast þær kröfur. Hann er einn besti markvörður sem hefur spilað fyrir Rosenborg,“ sagði Ola By Rise. Í háfleik þegar Rosenborg og Vålerenga mættust var Árni Gauti heiðraður. „Það er gaman að fá tækifærið að koma aftur á Lerkendal, heimavöll Rosenborgar og upplifa að vera heiðraður af félaginu. Vonandi er maður ekki alveg gleymdur,“ sagði Árni Gautur. „Það er frábært að sjá hann aftur. Ég veit að hann hefur verið veikur, en hann er sama manneskjan, það sé ég vel. Hann kom með son sinn með sér og það var eins og að sjá Árna Gaut ungan,“ sagði Ola By Rise.
Go to News Site