Collector
Lögreglan lokaði þremur afhendingarstöðum áfengisverslana | Collector
Lögreglan lokaði þremur afhendingarstöðum áfengisverslana
Fréttastofa RÚV

Lögreglan lokaði þremur afhendingarstöðum áfengisverslana

Lögreglan á Norðurlandi eystra fór á þrjá afhendingarstaði netverslana með áfengi í gærkvöld og gerði þeim að loka. Ástæðan var sú að verið var að afhenda áfengi á helgidegi. Þetta segir Börkur Árnason, varðstjóri hjá Lögreglunni á Norðurlandi eystra. „Þetta gekk bara vel. Þau tóku bara vel í þetta,“ segir Börkur. Afhendingarstöðunum var lokað á níunda tímanum í gærkvöld. Bannað að selja áfengi á helgidögum Samkvæmt áfengislögum er óheimilt að afhenda áfengi á helgidögum þjóðkirkjunnar, sumardaginn fyrsta, 1. maí, 17. júní og fyrsta mánudag í ágúst. Þá skulu áfengisútsölustaðir einnig vera lokaðir. Vínbúðin er því lokuð en misjafnt virðist vera hvort afhendingarstaðir netverslana með áfengi verði opnir um páskana. Á vef Santé kemur fram að lokað sé yfir helgidagana og á vef Smáríkisins er auglýst að lokað sé í dag en ekki er ljóst hvernig fyrirkomulagið verður yfir alla páskahelgina. Á vef Nýju Vínbúðarinnar stendur hins vegar að opið sé til miðnættis í dag, föstudaginn langa.

Go to News Site