Collector
Hefur fulla trú á upprisu flokksins | Collector
Hefur fulla trú á upprisu flokksins
Fréttastofa RÚV

Hefur fulla trú á upprisu flokksins

Lilja Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, segir flokkinn þurfa að fara aftur í rætur sínar til að ná til kjósenda í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Framsókn mældist með 4,7% fylgi í nýjum Þjóðarpúlsi Gallup og Lilja segir niðurstöðurnar vera brýningu fyrir flokkinn. Fylgið minnkar um nær tvö prósentustig milli kannana en þetta er í fyrsta sinn sem flokkurinn mælist utan þings og fengi ekki kjördæmakjörna þingmenn. „Við þurfum að gera betur“ „Við erum í mikilli umbótavinnu og það bara tekur tíma,“ segir Lilja. Hún var kjörin formaður Framsóknarflokksins um miðjan febrúar og segist alltaf hafa vitað að það yrði áskorun að byggja upp flokkinn en að henni þyki það spennandi. „Ég finn auðvitað til mikillar ábyrgðar og þetta gerir það að verkum að við leggjum okkur enn frekar fram,“ segir Lilja. „Þetta er auðvitað brýning. Þetta er brýning um að við þurfum að gera betur. Af því að við erum að tala saman um páskahelgina þá segi ég að ég hef fulla trú á því að flokkurinn rísi upp aftur.“ Lilja segir Framsókn þurfa að endurnýja pólitískt umboð flokksins og erindi hans til að ná betur til landsmanna. Hún kveðst viss um að það takist. „Skýringar eru ýmsar og það þýðir að maður þarf auðvitað að horfast í augu við stöðuna eins og hún er, viðurkenna hana og gera það af auðmýkt.“ Sveitarstjórnarkosningar eru handan við hornið og segir Lilja flokkinn einblína á þær. „Ég tel að með skýrri sýn um framtíð landsins og umbótatillögum í efnahagsmálum fyrir heimili og fyrirtækin í landinu, þá er ég viss um að hið pólitíska erindi Framsóknarflokksins verði endurnýjað.“

Go to News Site