Collector
Ráðist á vatnshreinsistöð í Kúveit | Collector
Ráðist á vatnshreinsistöð í Kúveit
Fréttastofa RÚV

Ráðist á vatnshreinsistöð í Kúveit

Átökin eru að harðna í Mið-Austurlöndum og Bandaríkjaforseti bætir enn í hótanir gegn Íran. Íranski herinn réðst á vatnshreinsistöð í Kúveit í gær og gerði árásir á Ísrael í nótt. Stálverksmiðja í Abú Dhabí og álver í Bahrein eru á meðal skotmarka Írana í nótt. Þá réðust þeir einnig á olíuhreinsunarstöð í Kúveit í gær og vatnshreinsistöð. Stjórnvöld í Teheran neita því reyndar að bera ábyrgð á árásinni á vatnsstöðina. Kúveit og flest önnur Persaflóaríki fá mestallt vatn frá vatnshreinsistöðvum. Ísraelsher segir loftvarnir hafa skotið niður íranskar eldflaugar í nótt og Hútar í Jemen segjast hafa skotið skæðadrífu eldflauga að borginni Tel Aviv. Hótanir á víxl Það er sem sagt ekkert sem bendir til þess að átökunum fari að linna, þvert á móti má segja að þau hafi harðnað. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, gefur í hótanir gegn Íran í færslu á Truth Social. Hann segir Bandaríkjaher rétt að byrja og boðar árásir á orku- og samgönguinnviði í Íran og valdaskipti í landinu. Íransher segist á móti ætla rústa eignum Bandaríkjanna í Mið-Austurlöndum ef Bandaríkin og Ísrael herða árásir á Íran. Álytkun um opnun Hormússunds Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna ætlar að greiða atkvæði um ályktun sem sex Persaflóaríki ásamt Jórdaníu leggja til um að Hormússund verði opnað að nýju. Til stóð að afgreiða tillöguna síðdegis í dag en Reuters greinir frá því að atkvæðagreiðslan fari líklega ekki fram fyrr en á morgun þar sem dagurinn í dag sé frídagur hjá Sameinuðu þjóðunum.

Go to News Site