Fréttastofa RÚV
Góðir Íslendingar, sex þátta fjölskyldukemmtun, hóf göngu sína í beinni útsendingu síðasta laugardag og er þættinum ætlað að sameina íslenskt grín og tónlist auk þess kafað verður ofan í íslenska menningu með húmor og lifandi stemningu að leiðarljósi. Fyrsti þáttur fékk gríðargóðar viðtökur og jákvæðar umsagnir áhorfenda en þátturinn hlaut 42% uppsafnað áhorf samkvæmt bráðabirgðatölum frá Gallup. Síðasta laugardag fékk þáttastjórnandinn Hildur Vala Baldursdóttir þá Sóla Hólm og Friðrik Dór sér til aðstoðar við að kryfja Eurovision-sögu vorrar þjóðar en nú er hins vegar komið að eina vinsælasta umræðuefni á nær öllum heimilum landsmanna, veðrinu. Hildur Vala fær til sín frábæra gestastjórnendur, þau Unnstein Manúel Stefánsson og Völu Kristínu Eiríksdóttur sem verða henni til aðstoðar, meðal annars við að lesa í veðurkortin. Taktu þátt í kosningunni um hvar á landinu sé besta og versta veðrið Eins og í síðasta þætti þá þurfum við þína aðstoð, kæra þjóð. Við viljum vita hvað ykkur finnst um íslenska veðrið og vinda. Hér fyrir neðan getið þið greitt atkvæði um uppáhalds árstíðina, dæmigerðasta sumarveðrið, hið alræmda 17. júní veður og allt hvaðeina.
Go to News Site