Fréttastofa RÚV
Ríkisstjórn Donalds Trump hefur beðið bandaríska þingið um að samþykkja að stórauka fjárveitingar til varnarmála. Hækkunin yrði sú mesta síðan í síðari heimsstyrjöld. Trump vill að þingið samþykki að verja 1.500 milljörðum dala til varnarmála, 42% meira en í fyrra, meðal annars til að efla skipaflota bandaríska hersins, fjármagna „gullnu hvelfinguna“, loftvarnarkerfi sem Trump hefur boðað, og hækka laun hermanna. Varnarmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur þegar óskað eftir 200 milljörðum dala vegna stríðsins í Íran og myndi hækkunin sem Hvíta húsið fer fram á leggjast ofan á þann kostnað. Hækkunin yrði því umtalsverð. Leggja til niðurskurð í loftslags- og húsnæðismálum Stjórnarliðar leggja til að á móti megi skera niður verkefni sem falla meðal annars undir loftslags-, húsnæðis- og menntamál. Niðurskurðurinn næst með því að draga úr eða uppræta „woke“, vopnvædd og óhagsýn verkefni, líkt og það er orðað í greinargerð. Trump hefur lengi talað fyrir því að auka fjárveitingar til varnarmála og sagði fyrr í vikunni að hernaðarútgjöld ættu að vera í forgangi.
Go to News Site