Collector
Áratugur frá birtingu Panama-skjalanna | Collector
Áratugur frá birtingu Panama-skjalanna
Fréttastofa RÚV

Áratugur frá birtingu Panama-skjalanna

Birting Panama-skjalanna svokölluðu svipti hulunni af umfangsmikilli aflandsþjónustu lögfræðistofunnar Mossack Fonseca sem varðaði rúmlega 200 fyrirtæki og einstaklinga í rúmlega 200 löndum, þar á meðal Íslandi. Í dag eru tíu ár frá því að fyrst var fjallað um Panamaskjölin en margt er enn óuppgert. Panama-skjölin voru gögn Mossack Fonseca í Panama og þar var ljóstrað upp um miklar eignir í skattaskjólum. Lekinn er einn sá umfangsmesti í sögunni – yfir 11 milljónir skjala, tölvupósta og stofnskjala aflandsfélaga. Þau innihéldu upplýsingar um yfir 214.000 aflandsfélög víða um heim. 800 aflandsfélög tengd 600 Íslendingum komu fram í skjölunum. Fyrsta umfjöllun um Panama-skjölin hér á landi var í Kastljósi 3. apríl 2016. Umfjöllunin var unnin í samstarfi við Reykjavík Media , Süddeutsche Zeitung og Alþjóðasamtök rannsóknarblaðamanna. Birting skjalanna og umfjöllun rannsóknarblaðamanna um þau skóku ríkisstjórnir, þar á meðal hér á landi. Lekinn varð til þess að Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, þáverandi forsætisráðherra, sagði af sér. Aflandsfélagið Wintris var í skjölunum skráð á Sigmund Davíð og eiginkonu hans. Þar voru einnig upplýsingar um tengsl Bjarna Benediktssonar, þáverandi fjármálaráðherra, við aflandsfélagið Falson. Viðtal sænska blaðamannsins Svens Bergman við Sigmund Davíð sem var sýnt í fyrrnefndum þætti Kastljóss vakti mikla athygli. Brot úr því má sjá í spilaranum hér að neðan en þáttinn í heild er hægt að horfa á með því að smella hér . Panama-skjölin svokölluðu voru birt í apríl 2016 og þar með var hulunni svipt af aflandsþjónustu lögfræðistofunnar Mossack Fonseca. Áhrifin voru umtalsverð og teygðu sig til um 200 landa, þar á meðal til Íslands. Leikstjóri, boltahetja og pólitíkusar í bobba Tengsl Nawaz Sharif, þáverandi forsætisráðherra Pakistan, við aflandsfyrirtæki leiddu af sér ævilangt bann við að gegna því embætti. Nafn spænska kvikmyndaleikstjórans Pedros Almodóvars mátti einnig sjá í skjölunum, fótboltakappans Lionels Messi og Davids Cameron, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands, svo dæmi séu nefnd. Hátt í þrjátíu manns voru ákærðir í Panama í tengslum við aflandsþjónustuna, Jurgen Mossack og Ramon Fonseca, stofnendur lögfræðistofunnar. Allir voru sýknaðir en Fonseca lést áður en málið var leitt til lykta sumarið 2024. Margt óuppgert og uppljóstrarinn óttasleginn Þó að tíu ár séu liðin er ýmislegt enn óuppgert. Réttarhöld yfir Christoph Zollinger, einum stjórnenda lögfræðistofunnar Mossack Fonseca, standa yfir í Köln í Þýskalandi. Zollinger starfaði ekki hjá Mossack Fonseca þegar skjölin voru birt en hann er grunaður um að tengjast aflandsþjónustunni. Þýsk yfirvöld halda því fram að hann hafi aðstoðað umbjóðendur Mossack Fonseca við að stofna tugi aflandsfélaga í skattaskjólum. Saksóknarar halda því fram að gjörðir Zollinger hafi leitt til 13 milljóna evra skattaundanskota. Hann gæti átt yfir höfði sér sjö ára fangelsisdóm. Zollinger hefur neitað fyrir dómi að hafa stofnað glæpasamtök en viðurkenndi að hafa aðstoðað við skattaundanskot. Enn er á huldu hver afhenti blaðamönnum gögnin á sínum tíma en samkvæmt Alþjóðasamtökum rannsóknarblaðamanna óttast viðkomandi um líf sitt.

Go to News Site