Collector
„Stórkostleg vegferð að kynnast þessum sálmum“ | Collector
„Stórkostleg vegferð að kynnast þessum sálmum“
Fréttastofa RÚV

„Stórkostleg vegferð að kynnast þessum sálmum“

Passíusálmar Hallgríms Péturssonar voru lesnir upp í Hallgrímskirkju í dag, eins og hefð er fyrir á föstudaginn langa. Átta lesarar skiptu með sér upplestrinum í Hallgrímskirkju, sumir sem þekkja sálmana vel og hafa flutt þá áður, en aðrir gerðu það í fyrsta sinn. Einn þeirra er Ítalinn Roberto Pagani. Hann er sá fyrsti til að flytja þá sem hefur ekki íslensku að móðurmáli. „Þetta er auðvitað mjög spennandi en ég finn líka fyrir mikilli ábyrgð. Þetta hefur verið stórkostleg vegferð að kynnast þessum sálmum sem eru mjög mikilvægur partur af menningararfi Íslands,“ segir Roberto. Roberto hefur búið hér á landi síðan 2014 og þekkir íslenska tungumálið líklega betur en flestir. Hann er aðjúnkt við Háskóla Íslands og hefur meðal annars kennt íslensk handritafræði og forníslensku. Passíusálmarnir nútímalegir miðað við þann texta sem hann les vanalega Roberto segist hafa heillast af Passíusálmunum meðal annars vegna þess hvernig þeir eru skrifaðir. „Ég er miðaldafræðingur að mennt þannig að þetta er mjög nútímalegt í samanburði við það sem ég les venjulega. Þess vegna var einfaldara að skilja textann og fara dýpra í hann,“ segir hann. Hugleiðingar og innihald sálmanna séu mikið umhugsunarefni. „Það er þvílík reynsla að lesa yfir þessa sálma og finna alltaf eitthvað nýtt,“ segir Roberto. Hann undirbjó sig vel fyrir upplesturinn, las textann aftur og aftur og naut góðrar aðstoðar Svanhildar Óskarsdóttur prófessors sem var líka á meðal flytjenda. „Það hjálpaði mjög mikið,“ segir Roberto. „Ég notaði líka þýðingar á ítölsku. Ég vildi skilja mjög vel hvað var í gangi. Það er mikið drama í þessum sálmum svo mér fannst mjög mikilvægt að ég skildi nógu vel hvað væri í gangi og að reyna að ímynda mér hvernig Hallgrímur hefði kannski sagt þessa hluti persónulega,“ segir Roberto. Ég finn fyrir mikilli ábyrgð, segir Ítalinn Roberto Pagani sem var á meðal þeirra sem lásu upp Passíusálmana í Hallgrímskirkju í dag. Hann er sá fyrsti til að flytja þá sem hefur ekki íslensku að móðurmáli og segir stórkostlegt að kynnast sálmunum.

Go to News Site