Collector
Lét krossfesta sig í 37. skipti | Collector
Lét krossfesta sig í 37. skipti
Fréttastofa RÚV

Lét krossfesta sig í 37. skipti

Via Dolorosa eða Þjáningarvegurinn í Jerúsalem er sú leið sem frelsarinn Jesús á að hafa gengið með krossinn sem hann var svo krossfestur á. Þar er vanalega varla þverfótað fyrir fólki á föstudaginn langa, en í dag voru fáir á ferli. Og við enda Þjáningarvegarins, í kirkju hinnar helgu grafar, leiddi Pierbattista Pizzaballa, latneski patríarkinn í Jerúsalem, bæn. Kirkjan stendur einmitt þar sem Jesús er talinn hafa verið krossfestur og grafinn. Átökin í Mið-Austurlöndum settu svip sinn á föstudaginn langa í Jerúsalem – þar sem Jesús var krossfestur og grafinn. Á Filippseyjum lét hinn 65 ára Ruben Enaje krossfesta sig í 37. skipti. Í San Fernando í Pampangas á Filippseyjum var krossfesting Krists endurgerð venju samkvæmt. Hinn 65 ára Ruben Enaje lét krossfesta sig í 37. skipti. Kaþólska kirkjan hefur gagnrýnt þetta og bent á aðrar leiðir til þess að færa fórnir og iðka trú. Sigyn Blöndal hitti Enaje í fyrra þegar hann var að undirbúa 36. krossfestinguna og í ár gerði hún þætti fyrir Rás 1 sem finna má í spilara RÚV. Leó páfi hélt fyrstu olíumessu sína í Péturskirkjunni í Róm í gær. Það er sérstök messa í dymbilviku þar sem þrjár tegundir olíu eru helgaðar. „Á þessum dimmu tímum sögunnar hefur Guði þóknast að senda okkur til að breiða út ilminn af Krist þar sem nályktin ríkir. Við skulum segja aftur já við þessu erindi sem krefst samstöðu og kemur á friði,“ sagði Leó páfi.

Go to News Site