Fréttastofa RÚV
Yfir þrettán hundruð ökumenn voru kærðir í fyrra fyrir notkun farsíma eða annars snjalltækis í akstri. Lögreglan segir þessi umferðarlagabrot hafa færst í aukana. „Við erum að stöðva að meðaltali 95 ökumenn í hverjum einasta mánuði ársins fyrir að vera í síma þegar þeir eru að keyra. Og það er bara of há tala,“ segir Árni Friðleifsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn umferðardeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Árni segir að þessi brot færist í aukana. „Síðustu þrjú, fjögur ár hafa þetta verið í kringum þúsund ökumenn á hverju ári, en í fyrra voru alveg skýr merki um að það væri aukning og við erum með rúmlega 1300 ökumenn árið 2025 sem eru kærðir fyrir að vera í farsíma við akstur.“ 40 þúsund í sekt og einn punktur í ökuferilsskrá Lögreglumenn hafa oft frumkvæði að eftirliti með umferðarlagabrotum og fara í það þegar færi gefst á milli annarra verkefna, segir Árni. Fréttastofa gerði óformlega talningu á því hversu margir ökumenn voru með síma eða annað snjalltæki í hendinni á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar í vikunni. Niðurstöður leiddu í ljós að á fimmtán mínútum var að jafnaði einn ökumaður á mínútu með símann í hendi. Samkvæmt 57. grein umferðarlaga er ökumanni óheimilt að nota farsíma, snjalltæki eða önnur raftæki sem geta truflað aksturinn án handfrjáls búnaðar. Sektin er fjörutíu þúsund krónur og einn punktur í ökuferilsskrá. Notkun farsíma og snjalltækja í akstri hefur aukist undanfarin ár. Á fjórtánda hundrað ökumenn voru kærðir fyrir þessi umferðarlagabrot hér á landi í fyrra. Endurskoða þurfi sektarreglugerð Árni telur vafalaust að ökumenn myndu hugsa sig tvisvar um áður en þeir taka upp símann við akstur, fyndu þeir meira fyrir sektunum. „Samgönguyfirvöld mættu endurskoða sektarreglugerðina almennt. Sektarreglugerðin er frá árinu 2019. Hefur hún þróast með verðlagi á Íslandi? Ég veit að víða annars staðar eru sektir við að nota farsíma mun hærri og til að mynda í Noregi er sektin komin upp í kringum 140 þúsund ásamt þremur punktum, sem er nokkuð há tala.“
Go to News Site