Fréttastofa RÚV
„Bjargvætturinn“ er nafn á nýrri sýningu hjá Byggðasafni Árnesinga á Eyrarbakka en þar er sagt frá björgun manns í Ölfusá 1944 þegar brúin brast undan vörubíl, sem fór í ána. Maðurinn náði að bjarga sér á varadekki bílsins en dekkið sjálft er aðalsýningargripurinn á sýningunni. Margir mættu þegar sýningin var formlega opnuð, meðal annars fjölskylda Jóns Ingibergs Guðmundssonar, fyrrverandi yfirlögregluþjóns á Selfossi, en hann dó 2001. Sýningin snýst um björgun Jóns úr Ölfusá þegar tveir vörubílar frá Kaupfélagi Árnesinga fóru fram af gömlu Ölfusárbrúnni 6. september 1944. Brúin brast undan þunganum, bílarnir féllu í ána og Jón slapp naumlega lifandi. Sýningin er í húsi sem heitir Kirkjubær og er hluti af safni byggðasafnsins. „Annar lenti á grynningum en hinn fór á bólakaf en fyrir harðræði þá bjargaðist bílstjórinn. Hann fór á bólakaf en gat farið út úr bílnum og fór þá á yfirborðið og fann þar mjólkurbrúsa og hafði lélegt tak á honum en þá náði hann taki á varadekkinu og á því flaut hann niður ána heila tólf hundruð metra þar til að hann komst á land,” segir Lýður Pálsson, safnstjóri Byggðasafns Árnesinga. Dekkið góða er á sýningunni enda bjargaði Jón Ingiberg sínum bjargvætti, dekkinu sjálfu, sem hann gaf svo Byggðasafni Árnesinga 1991. En var atburðurinn eitthvað ræddur á heimili Jóns Ingibergs, eða hvað? „Nei, það var ósköp lítið held ég, sem ég man. Þetta var jú mikið björgunarafrek enda er þetta mikið fljót þarna,” segir Haukur Jónsson, sonur Jóns Ingibergs. Eitt af afabörnum Jóns Ingiberts heitins ekur á bíl með bílnúmerinu sem afi hennar var alltaf með, X – 50. „Þetta er þekkt númer frá afa mínum, Jóni fyrrverandi lögregluþjóni í Árnessýslu. Ég fékk að halda númerinu og er búin að eiga það í mörg ár. Þetta var náttúrulega rosalegt þrekvirki, sem afi vann og hann var bara rosalega yfirvegaður maður,” segir Guðný Ingvarsdóttir, barnabarn Jóns Ingibergs. Sýningin verður opin alla páskana og opnar svo aftur í byrjun sumars og verður opin fram á haust. Afkomendur Jóns Ingibergs Guðmundssonar voru meðal þeirra sem komu á formlega opnun á sýningu um björgun hans úr Ölfusá árið 1944 í Byggðasafni Árnesinga.
Go to News Site