Fréttastofa RÚV
Tilraunir pakistanskra yfirvalda til að koma á friðarviðræðum milli Bandaríkjanna og Írans hafa siglt í strand. Björgunarmenn að störfum í Ísrael.AP / Oded Balilty Ónafngreindir heimildarmenn The Wall Street Journal segja Írana hafa tjáð milligöngumönnum að þeir vilji ekki setjast að samningaborði með bandarískum embættismönnum í Islamabad á næstu dögum eins og til stóð. Kröfur Bandaríkjastjórnar væru hreinlega óásættanlegar. Mikils ósamræmis hefur gætt í yfirlýsingum leiðtoga ríkjanna varðandi mögulegar viðræður.
Go to News Site