Fréttastofa RÚV
Dómsmálaráðherra hefur sett reglugerð um hvernig nýta má skip, flugvélar og þyrlur Landhelgisgæslu Íslands utan lögbundinna verka hennar. Heimilt verður að nýta loftför og skip Landhelgisgæslu Íslands vegna óvæntra atburða sem krefjast skjótra flutninga samkvæmt nýrri reglugerð dómsmálaráðherra, og einnig til alþjóða- og forvarnarstarfs og við góðgerðarverkefni. Á vef Stjórnarráðsins segir að reglugerðin snúi að notkun tækja Landhelgisgæslunnar við verkefni sem falla utan lögbundinna og samningsbundinna verka hennar. Þau skilyrði eru sett að hagkvæmni sé gætt og að geta gæslunnar til að sinna lögbundnu hlutverki skerðist ekki. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir að ekki megi skerða viðbragðsgetuna og að nýting tækjanna sé alltaf í þágu almennings, gagnsæ og ábyrg. Umgjörðin þurfi að vera skýr. „Við erum að setja skýran ramma utan um notkun mikilvægra björgunartækja ríkisins,“ segir Þorbjörg. Auk framangreinds má nota förin til formlegra athafna sem ekki er hægt að mæta öðruvísi og fræðslu og kynningar á björgunartækjum ríkisins. Landhelgisgæslan sjálf metur hvort skilyrði séu uppfyllt, heldur skrá yfir samþykktar beiðnir og upplýsir dómsmálaráðuneytið um ferðirnar. Sérstaklega er áréttað að einkanotkun farartækja Landhelgisgæslunnar er með öllu óheimil.
Go to News Site