Collector
Artemis-leiðangurinn hálfnaður til tunglsins | Collector
Artemis-leiðangurinn hálfnaður til tunglsins
Fréttastofa RÚV

Artemis-leiðangurinn hálfnaður til tunglsins

Artemis II leiðangur bandarísku geimferðastofnunarinnar NASA er kominn hálfa leið til tunglsins, hefur ferðast 219 þúsund kílómetra út í geim. Artemis II áhöfnin, frá vinstri: Jeremy Hansen, Reid Wiseman, Christina Koch og Victor Glover um borð í Orion-hylkinu.AP/NASA / Uncredited Orion-farinu með fjóra geimfara innanborðs var skotið upp frá Kennedy-geimferðamiðstöðinni á miðvikudaginn. Meðan farið hringsólaði jörðina gerði áhöfnin ýmsar prófanir og minni háttar viðgerðir áður en hún kveikti á eldflaugum þess í sex mínútur. Þá þeyttist það af stað í átt að tunglinu í hringferð sem á að taka tíu daga eða svo. Þá hefur áhöfnin ferðast lengra út í geim en nokkur maður hefur áður gert, eða um 405 þúsund kílómetra. Talsmenn NASA segja allt ganga að óskum. Ljósmynd af jörðinni sem Reid Wiseman tók út um glugga Orion-hylkisins 2. apríl.AP/NASA / Uncredited

Go to News Site