Fréttastofa RÚV
Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti segir ekki hafa orðið meira mannfall í Rússlandsher en í mars frá upphafi innrásarstríðsins. Hann segir í færslu á samfélagsmiðlinum X að yfir 35 þúsund hermenn hafi verið drepnir eða særst alvarlega í síðasta mánuði. „Þetta er staðfest manntjón. Við geymum myndupptökur af öllum árásum,“ skrifaði Zelensky og bætti við að stjórnvöld væru tilbúin að deila upplýsingum með öllum samherjum sínum. Rússar hafa ekki enn tjáð sig um staðhæfingar Zelenskys. Árásir Úkraínuhers urðu til þess að rafmagnslaust varð í úkraínska héraðinu Zaporizhzhia sem Rússar hernámu sjö mánuðum eftir að innrásarstríðið hófst í febrúar 2022. Úkraínskir fjölmiðlar hafa birt myndskeið sem sýnir eldhnött stíga til himins eftir árás á tengivirki í iðnaðarhverfi í borginni Melitopol. Einn týndi lífi í Rostov og fjórir alvarlega sárir Einn var drepinn og fjórir særðust alvarlega þegar Úkraínuher gerði dróna- og eldflaugaárás á Rostov í Rússlandi. Héraðsstjóri segir atlögunni hafa verið beint að verslanamiðstöð í hafnarborginni Taganrog. Eldur kviknaði í flutningaskipi undir erlendum fána á Azovhafi þegar brak úr dróna skall á því. Héraðsstjórinn segir loftvarnarkerfi hafa skotið niður fjölda flygilda. Úkraínuher hefur iðulega ráðist til atlögu innan Rússlands eftir árásir þaðan. Að minnsta kosti 14 voru drepnir í árásum Rússlandshers á Úkraínu í gær, sem hefur á síðustu vikum bætt í árásarþunga sinn að degi til. Á sjötta hundrað drónum og tugum eldflauga var beint að skotmörkum víða um land. Úkraínumenn hafa lagt til vopnahlé yfir páskana en rússnesk yfirvöld segjast ekki hafa fengið skýra tillögu þess efnis. Forsetinn Volodymyr Zelensky og utanríkisráðherrann Andriy Sybiga voru þungorðir í garð Rússa sem þeir segja að hefðu fremur átt að draga úr árásum en auka í aðdraganda hátíðarinnar.
Go to News Site