Fréttastofa RÚV
Maður var handtekinn í Kópavogi fyrir að valda spjöllum á eignum fólks og hafa í hótunum við það, að því er segir í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fjórir gistur fangaklefa lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í morgun.Ruv.is / Anton Brink Auk hans gistu þrír fangageymslur lögreglu í morgun, allir grunaðir um fíkniefnasölu. Engan sakaði í útafkeyrslu í Háaleitishverfi en hins vegar meiddist maður þegar hann datt í tröppum fjölbýlishúss í Efra-Breiðholti og var fluttur með sjúkrabíl á bráðamóttöku. Þar í hverfi var einnig óskað eftir liðsinni lögreglu vegna gripdeilda í verslun.
Go to News Site