Fréttastofa RÚV
Sveinn Óskar Sigurðsson er oddviti Miðflokksins í Mosfellsbæ fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor. Flokkurinn opinberaði listann í morgun. Í tilkynningu segir að megináhersla verði lögð á að setja íbúa í fyrsta sæti, bæta þjónustu við börn og fjölskyldur, tryggja öryggi eldri borgara og efla ábyrgari ákvarðanatöku í skipulags- og fjármálum bæjarins. „Við í Miðflokknum í Mosfellsbæ viljum einfaldlega gera hlutina betur. Setja fólkið í fyrsta sæti, styrkja grunnþjónustuna og taka ábyrgari ákvarðanir. Við teljum að of lengi hafi skort skýra forgangsröðun og aðhald í rekstri bæjarins. Nú er tími breytinga. Við erum tilbúin að taka ábyrgð og vinna fyrir íbúa Mosfellsbæjar af festu, skynsemi og heiðarleika,“ er haft eftir Sveini oddvita. Listi Miðflokksins í Mosfellsbæ: Sveinn Óskar Sigurðsson Ingibjörg Einarsdóttir Hjalti Árnason Sóley Sævarsdóttir Meyer Kristján Davíð Sigurjónsson Karl Gissur Þórisson Nói Þrastarsson Sara Hafbergsdóttir Ólafur Vignir Þórarinsson Eythór Bjarki Benediktsson Aldís Dröfn Ingvarsdóttir Bjarki Þór Þórisson Pétur Þór Ásgeirsson Helga Diljá Jónsdóttir Sigurjón Kristjánsson Jóhannes Birgir Jóhannesson Mikael Árni Bergmann Þorsteinsson Linda Björk Stefánsdóttir Hlynur Hilmarsson Friðbert Bragason Sigurrós K. Indriðadóttir Þorlákur Ásgeir Petursson
Go to News Site