Collector
Mæla gegn því að gengið sé ofar en að Steini | Collector
Mæla gegn því að gengið sé ofar en að Steini
Fréttastofa RÚV

Mæla gegn því að gengið sé ofar en að Steini

Esjan. Mynd úr safni.Vilhjálmur Þór Guðmundsson / RÚV Veðurstofa Íslands varar við snjóflóðahættu víða um land í dag eftir snjókomu sem bættist ofan á en bast illa við eldri snjó. Náttúruleg snjóflóð hafa fallið víða á landinu og einnig hafa orðið nokkur snjóflóð af mannavöldum. Engin slys hafa orðið. Í tilkynningu frá Veðurstofunni segir að líklega haldi margir til fjalla til að njóta útiveru. Fólk á ferð í fjalllendi er hvatt til að kynna sér snjóflóðaaðstæður áður en haldið er af stað. Veikleikar eru víða í snjóþekjunni í kringum höfuðborgarsvæðið og snjóflóðavaktin mælir sérstaklega gegn því að gengið sé ofar en að Steini í Esjunni, og hugi vel að leiðarvali.

Go to News Site