Fréttastofa RÚV
Bandarískur hermaður sem var um borð í F-15 orrustuþotu sem var skotin niður yfir Íran í gær er enn ófundinn. Bandaríkjaher og Íranir eru í kapphlaupi um að finna hann, írönsk stjórnvöld heita sem nemur ríflega átta milljónum króna í umbun fyrir þann sem finnur hermanninn. Bandarísk stjórnvöld hafa ekki sagt mikið opinberlega um þetta mál. Donald Trump Bandaríkjaforseti var spurður í símaviðtali í gær hvernig hann myndi bregðast við ef Íranir næðu hermanninum. Hann sagðist ekki vilja ræða það, því vonandi myndi það ekki gerast. Trump var einnig spurður hvort þetta atvik hafi áhrif á mögulegar viðræður við Íran og sagðist hann ekki eiga von á því. Ef Íranir ná þessum bandaríska hermanni yrði það mikill sigur fyrir írönsk stjórnvöld og vafalaust notað í einhvers konar áróðursherferð. Í dag eru fimm vikur frá því átökin hófust og líklega var það tímaspursmál að Bandaríkin eða Ísrael myndu lenda í slíku atviki í Íran. Herlið þessarar tveggja ríkja hafa sveimað stöðugt yfir Íran og gert þar loftárásir. Íransher hefur gert nokkuð umfangsmiklar árásir á Ísrael í nótt og í morgun. Enn komast íranskar eldflaugar í gegnum öflugt loftvarnarkerfi Ísraela. Það eru töluverðar skemmdir á byggingum og að minnsta kosti einn er særður. Ísraelsher hefur einnig gert árásir á Íran, meðal annars á háskóla í Teheran. Þá hefur Ísraelsher gert harðar árásir á Líbanon. Þrír indónesískir friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna særðust í sprengingu í Líbanon í gær, tveir þeirra mjög alvarlega að sögn embættismanna. Þrír landar þeirra týndu lífi í svipaðri árás þremur dögum fyrr.
Go to News Site