Collector
„Við eigum að taka þessum yfirlýsingum alvarlega“ | Collector
„Við eigum að taka þessum yfirlýsingum alvarlega“
Fréttastofa RÚV

„Við eigum að taka þessum yfirlýsingum alvarlega“

Formaður Varðbergs — samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál, segir rétt að taka ummælum Bandaríkjaforseta um mögulega útgöngu þess úr Atlantshafsbandalaginu alvarlega. Þó beri að taka yfirlýsingum forsetans með ákveðnum fyrirvörum. Fyrr í vikunni sagðist Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, íhuga það alvarlega að draga Bandaríkin úr NATO þar sem önnur aðildarríki kæmu ekki til aðstoðar í stríði þeirra og Ísraels gegn Íran. „Í mínum huga er þetta þungt og við eigum að taka þessum yfirlýsingum alvarlega. Hins vegar ber að hafa í huga að þetta er ekki í fyrsta skiptið sem hann kemur með stórkarlalegar yfirlýsingar,“ segir Davíð Stefánsson, formaður Varðbergs. „Þetta er heldur ekki í fyrsta skiptið sem Atlantshafsbandalagið lendir í krísu. Þetta eru 32 aðildarríki og þau hafa ólíka hagsmuni og það er togstreita á milli þeirra.“ Meirihluti þingsins þarf að samþykkja ákvörðunina Davíð segir mikilvægt að hafa í huga að Trump hafi ekki umboð til þess að taka einhliða ákvörðun um að draga Bandaríkin úr NATO. Rúmur meirihluti bandarískra þingmanna þarf einnig að samþykkja ákvörðun forsetans. Marco Rubio utanríkisráðherra hefur tekið undir ummæli Trumps en bandarískir miðlar hafa rifjað upp ummæli hans frá 2023, þar sem hann sagði skýrt að forseti geti ekki einhliða ákveðið að draga Bandaríkin úr NATO. Davíð segir að þessar hótanir Trumps hafi slæm áhrif á Atlantshafsbandalagið. „Þetta er þungt að því leytinu til að allar slíkar fullyrðingar stærsta aðila Atlantshafsbandalagsins geta einfaldlega dregið út trúverðugleika þess. Þær geta dregið úr trúverðugleika um að skuldbindingum verði ekki fylgt eftir og það getur einfaldlega dregið úr fælingarmætti bandalagsins,“ segir Davíð. Vegið að frelsi um allan heim Að mati Davíðs gætu ummæli forsetans virkað sem hvati fyrir Evrópu til þess að gera betur í eigin vörnum. Sömuleiðis sé þetta áminning fyrir Íslendinga um að fylgja eftir skuldbindingum um sterkari varnir og aukna samvinnu. „Það er einfaldlega þannig að vegið er að frelsi um allan heim. Skuggar einræðis vofa yfir flestum ríkjum veraldar. Fimmti hver maður á jörðinni nýtur þess frelsis sem við Íslendingar njótum. Það er áfram þörf fyrir að frjáls ríki vinni saman og það er áfram þörf fyrir Atlantshafsbandalagið.“

Go to News Site