Fréttastofa RÚV
Burðarþolssérfræðingurinn og brúarhönnuðurinn Jón Guðni Guðmundsson leiðir lista Viðreisnar á Akranesi í sveitarstjórnarkosningunum í vor. Listinn er sá fyrsti sem Viðreisn teflir fram í sveitarfélaginu. Í öðru sæti listans er Helga Björg Þrastardóttir matreiðslumeistari og í því þriðja Ingvar Örn Ákason verkefnastjóri. Fjórða sætið skipar Guðný Sara Birgisdóttir, fjáröflunarstjóri Krafts og listakona. Í framboðstilkynningu segist Jón Guðni Guðmundsson, oddviti flokksins, hafa mikla trú á því að Viðreisn muni koma af krafti inn í mál bæjarins með lausnamiðaðri nálgun og jákvæðni að leiðarljósi. Mikilvægt sé að samþætta húsnæðismál, skipulagsmál og atvinnumál með öðrum málaflokkum sem séu grunnstoðir samfélagsins.
Go to News Site