Collector
Vatnsból Heiðmerkur girt af sem nemur 47 knattspyrnuvöllum | Collector
Vatnsból Heiðmerkur girt af sem nemur 47 knattspyrnuvöllum
Fréttastofa RÚV

Vatnsból Heiðmerkur girt af sem nemur 47 knattspyrnuvöllum

Framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur hefur miklar áhyggjur af stöðu útivistarsvæðisins í Heiðmörk því Reykjavíkurborg ætlar að skerða svæðið af, sem nemur fjörutíu og sjö knattspyrnuvöllum, til að vernda vatnsból svæðisins. Borgarstjóri segir mikilvægt að vernda vatnsból höfuðborgarinnar enda sé mikilvægt fyrir íbúa að hafa aðgang að hreinu vatni. „Lífið í skóginum“ var heiti á fagráðstefnu skógræktar sem fór nýlega fram á Stracta hóteli á Hellu að viðstöddu fjölmenni frá skógræktarfélögum landsins og stofnunum og félögum sem eru með skógrækt á sinni könnu. „Veruleg skerðing á útisvæðinu“ Fjölmörg erindi voru haldin og eitt af þeim hélt framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur en erindið kallaði hún „Pólitík skógræktar“. „Það eru ákvarðanir um hvernig við nýtum landið okkar og hvernig við ætlum að byggja upp skóginn og hvernig við skipuleggjum landsvæði og stöndum vörð um græn svæði, sem við erum þegar búin að byggja upp,” segir Auður Elva Kjartansdóttir, framkvæmdastjóri Skógræktarfélags Reykjavíkur. Auður segir að pólitískt kjörnir fulltrúar í sveitarstjórnum mættu hlusta betur og hlúa betur að „grænu“ málunum eins og hún kallar það en Skógræktarfélag Reykjavíkur sér meðal annars um umsjón og rekstur svæðisins í Heiðmörk. „Þá bendi ég sérstaklega í áttina að borgaryfirvöldum í Reykjavík, sem við erum að óska eftir frekara samtali um málefni Heiðmerkur, til dæmis. Það eru vissulega miklar áskoranir sem Heiðmörk stendur frammi fyrir og hérna er um verulegar skerðingar á útivistarsvæðinu,” segir Auður. Auður segir að það eigi að girða vatnsból svæðisins af, sem muni skerða útivistargildi svæðisins til mikilla muna. „Það eru áform um að reisa girðingu, sem eru 47 fótboltavellir, sem maður er með svona útsýnispunkt yfir Heiðmörk. Það er veruleg skerðing á útivistarsvæðinu, já,” segir Auður. Börgaryfirvöld taka verndum vatnsbóla alvarlega Í skriflegu svari frá borgarstjóra kemur meðal annars fram að borgaryfirvöld taki verndun vatnsbóla höfuðborgarinnar mjög alvarlega enda sé mikilvægt fyrir íbúa að hafa aðgang að hreinu vatni. Í þeim tilgangi telur Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur mikilvægt að girða af brunnsvæði í Heiðmörk. Á sama tíma sé mikilvægt að tryggja aðgengi almennings að Heiðmörk og að halda áfram skógrækt í góðu samstarfi við Skógræktarfélag Reykjavíkur. Til að mæta öllum þessum sjónarmiðum hefur borgarstjóri skipað samstarfshóp með fulltrúum allra flokka í borgarstjórn og helstu hagaðilum. „Það er mikilvægt að sýna ábyrgð í þessari umræðu, unnið er að leið til að mæta ólíkum sjónarmiðum og deiliskipulagi miðar ágætlega. Það er mikilvægt að við hlustum á sérfræðinga þegar kemur að svo mikilvægum innviðum eins og vatninu,” segir Heiða Björg Hilmisdóttir jafnframt í svari sínu.

Go to News Site