Collector
Skoða að gera minni kröfur á flug til Ísafjarðar til að ná niður kostnaði | Collector
Skoða að gera minni kröfur á flug til Ísafjarðar til að ná niður kostnaði
Fréttastofa RÚV

Skoða að gera minni kröfur á flug til Ísafjarðar til að ná niður kostnaði

Vegagerðin skoðar að gera minni kröfur um þjónustu á flugi til Ísafjarðar til að ná kostnaði niður, eftir hátt tilboð Icelandair. Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri á Ísafirði, veltir fyrir sér hvernig það horfir við öðrum sem hugsanlega hefðu boðið í flugið. Tilboð Icelandair í flugið var rúmlega tvöfalt hærra en kostnaðarmat Vegagerðarinnar, en flugfélagið átti eina tilboðið. Kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar var unnin með ráðgjafa úr flugrekstri og í samskiptum milli Vegagerðarinnar og innviðaráðuneytisins kemur fram að hátt tilboð Icelandair hafi komið flatt upp á Vegagerðina. Til að ná kostnaði niður er til skoðunar að gera minni kröfur um þjónustu. „Það er auðvitað spurning hvaða þjónustukröfur það eru sem á þá að gefa eftir. Við vorum með ákveðinn sætafjölda og einnig tíðni og ég myndi telja að tíðnin væri það sem skipti okkur mestu máli,“ segir Sigríður Júlía Brynleifsdóttir, bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Vegagerðin hyggst stilla upp tveimur eða þremur sviðsmyndum fyrir ráðuneytið um hvaða þjónustustig gæti verið ásættanlegt. Ísafjarðarbær á ekki aðkomu að samningaviðræðunum en Sigríður vonast til að fundin verði farsæl lausn. „Maður fer að velta fyrir sér ef það á að gefa eftir einhverjar þjónustukröfur hvernig það horfir við öðrum sem hefðu hugsanlega boðið í.“ Hátt tilboð Icelandair í flug til Ísafjarðar kom flatt upp á forsvarsmenn Vegagerðarinnar. Til skoðunar er að skerða þjónustu til að ná niður kostnaði, sem íbúum líst afar illa á.

Go to News Site