Fréttastofa RÚV
Yfirmaður barnaspítala á Gaza varar við því að vannærðum börnum virðist fjölga á ný og á sama tíma er skortur á sérstakri mjólk fyrir vannærð börn. Hægt og illa gengur að hreinsa rústir og byggja heimili upp að nýju vegna takmarkana ísraelskra stjórnvalda. Um eitt hundrað börn leita á barnaspítalanna á Nasser-sjúkrahúsinu í hverri viku. „Um 30% þjást af alvarlegri vannæringu og 50% af miðlungs vannæringu,“ segir Israa Al-Najjar, yfirmaður á næringardeild. Ahmed Al-Farra, yfirmaður barnaspítalans, segir alvarlegan skort á vörum fyrir vannærð börn. Mjólk fyrir vannærð börn er ekki það eina sem skortir. Ísraelsk stjórnvöld takmarka enn mjög hverju er hleypt inn á svæðið. Þar á meðal eru hveiti og gas, þess vegna er mikill skortur á brauði og fólk bíður í löngum röðum eftir mataraðstoð. Hundruð þúsunda hafast enn við í tjöldum þrátt fyrir að næstum hálft ár sé liðið frá því að vopnahlé tók gildi. „Þeir segja að fyrsti áfanginn sé hafinn, annar áfanginn sé hafinn. Og nú er það Íran. Þeir eru hættir að hugsa um okkur og eru nú annars hugar vegna Íran,“ segir Ayaat Abu Rjeela sem er á vergangi á Gaza. „Sama hve mikið ég reyni að útskýra það sem við höfum þurft að þola, ég gæti ekki lýst þjáningunum. Enginn spyr um okkur og öllum er sama um okkur,“ segir Nabil Abu Rock sem einnig er á vergangi á Gaza. Samhæfingarskrifstofa Sameinuðu þjóðanna í mannúðarmálum ,OCHA, segir erfitt að byggja aftur upp heimili fólks vegna takmarkana Ísraelsstjórnar. „Þar á meðal er timbur, steypa, verkfæri o.s.frv. Við einnig verið að reyna að hreinsa mörg tonn af rústum af götunum en það er erfitt vegna takmarkanna á þungavinnuvélar,“ segir Olga Cherevko, talskona OCHA. Vannærðum börnum fjölgar á ný á Gaza og uppbygging gengur hægt og illa vegna takmarkana ísraelskra stjórnvalda. Hundruð þúsunda hafast enn við í tjöldum þrátt fyrir að næstum hálft ár sé liðið frá því að vopnahlé tók gildi.
Go to News Site