Collector
Southampton sló Arsenal út úr bikarnum | Collector
Southampton sló Arsenal út úr bikarnum
Fréttastofa RÚV

Southampton sló Arsenal út úr bikarnum

Shea Charles og félagar fagna sigurmarkinu en Saliba og Kepa eru ráðþrota.IMAGO Arsenal er úr leik í enska bikarnum í fótbolta eftir 2-1 tap gegn Southampton. Southampton er í næstefstu deild og komst yfir með marki Ross Stewart á 35. mínútu. Viktor Gyökeres jafnaði metin á 68. mínútu. Shea Charles skoraði svo sigurmarkið á 85. mínútu. Southampton fer því áfram í undanúrslit en fyrr í dag vann Manchester City 4-0 sigur gegn Liverpool. Þá vann Chelsea 7-0 sigur gegn Port Vale. Á morgun mætast West Ham og Leeds.

Go to News Site