Collector
Engan sakaði í sprengingu við miðstöð samtaka hliðhollra gyðingum | Collector
Engan sakaði í sprengingu við miðstöð samtaka hliðhollra gyðingum
Fréttastofa RÚV

Engan sakaði í sprengingu við miðstöð samtaka hliðhollra gyðingum

Engan sakaði og minniháttar skemmdir urðu þegar sprengja sprakk nærri miðstöð samtakanna Kristnir fyrir Ísrael í hollensku borginni Nijkerk. Lögregla segir rannsókn sýna að svartklædd manneskja kom sprengjunni fyrir utan við hlið miðstöðvarinnar. Talsmenn samtakanna segja að þótt tjónið sé lítið verði afleiðingarnar miklar og sögðust uggandi yfir endurteknum atlögum að gyðingum og stuðningsfólki Ísraels í Hollandi og Belgíu. Harakat Ashab al-Yamin al-Islamiya, lítt þekkt samtök íslamista sem talin eru tengd Íran, birtu myndskeið af byggingunni og hótanir í garð stuðningsfólks Ísraels. Þau hafa lýst ábyrgð á skemmdarverkum í framangreindum löndum auk Bretlands og birt myndskeið af þeim. Hafa lýst ábyrgð á fleiri tilræðum Frá því Bandaríkin og Ísrael réðust á Íran 28. febrúar hafa samtökin sagst standa að baki íkveikju á sjúkrabílum gyðinglegra sjálfboðaliðssveita í Lundúnum , fólksbíl í Antwerpen auk sprengjutilræða í bænahúsum í Liege og Rotterdam og í gyðingaskóla í Amsterdam. Sérfræðingar hafa dregið tilvist samtakanna í efa og gera því jafnvel skóna að leyniþjónusta Írans skipuleggi árásirnar. Lögregla segir of snemmt að vera með getsakir um ástæður árásarinnar, rannsókn standi yfir og enn hafi enginn verði handtekinn. Samtökin Kristnir fyrir Ísrael segjast boða aukinn skilning á orðum biblíunnar um fyrirætlan guðs varðandi Ísrael og veita Ísraelsmönnum huggun í verki og með bæn. Miðstöðin í Nijkerk hýsir sýningar, verslun og þar eru haldnir fyrirlestrar, að því er segir á vefsíðu samtakanna.

Go to News Site