Collector
Einn látinn eftir snjóflóð á Grænlandi | Collector
Einn látinn eftir snjóflóð á Grænlandi
Fréttastofa RÚV

Einn látinn eftir snjóflóð á Grænlandi

Fjórir urðu undir snjóflóði á Grænlandi síðdegis í dag. KNR , ríkisútvarp Grænlands, greinir frá. 17 ára unglingur sem var meðal þeirra lést á sjúkrahúsi. Lögreglunni á Grænlandi barst tilkynning um slysið klukkan 15:45 að staðartíma í dag, eða 16:45 að íslenskum tíma. Sex einstaklingar voru á vélsleðaferð á fjallinu Qassi, suður af Nuuk, þegar fjórir þeirra hurfu í snjóflóði. Viðbragðsaðilar hófu leit að fjórmenningunum en hinir tveir úr hópnum voru fastir á toppi fjallsins. KNR hefur eftir Karsten Højrup Kristensen, varðstjóra hjá lögreglunni, að einstaklingarnir fjórir hafi fundist illa haldnir, kaldir og með merki um ofkælingu í snjónum um 17:30 að staðartíma. Þeir voru því fluttir til Nuuk-flugvallar og þaðan á sjúkrahús. Lögreglan á Grænlandi greindi frá andláti 17 ára unglingsins. Embættið segir tvo aðra hafa verið lagða inn á sjúkrahús, þó ekki í lífshættu, og að sjá fjórði sé ómeiddur.

Go to News Site