Collector
Skyldmenni drepins íransks hershöfðingja sögð handtekin og svipt varanlegu dvalarleyfi | Collector
Skyldmenni drepins íransks hershöfðingja sögð handtekin og svipt varanlegu dvalarleyfi
Fréttastofa RÚV

Skyldmenni drepins íransks hershöfðingja sögð handtekin og svipt varanlegu dvalarleyfi

Bandarísk yfirvöld segjast hafa handtekið tvær konur, mæðgur, náskyldar íranska hershöfðingjanum Qaseem Soleimani, sem drepinn var í drónaárás Bandaríkjahers á Írak í janúar 2020. Ráðuneytið segir móðurina, Hamideh Soleimani Afshar, einarðan stuðningsmann klerkastjórnarinnar í Íran og að hún hafi lýst Bandaríkjunum sem hinum mikla Satan í færslum á samfélagsmiðlum. Marco Rubio utanríkisráðherra hefur afturkallað varanlega og lögmæta vist kvennanna í landinu, að því er segir í tilkynningu ráðuneytisins. Það segir mæðgurnar í haldi innflytjendastofnunar Bandaríkjanna, án þess að tíunda það frekar. Tvær dætur Soleimanis búsettar í Íran þvertaka fyrir nokkurn skyldleika við konurnar, samkvæmt umfjöllun þarlendra miðla. Þær segja yfirlýsingar ráðuneytisins lygi og að enginn ættingi Soleimanis hafi nokkurn tíma búið í Bandaríkjunum. Eiginmanni Soleimani Afshar hefur verið meinað að koma til Bandaríkjanna samkvæmt yfirlýsingu ráðuneytisins. Ráðuneytið segir einnig að dvalarleyfi dóttur og tengdasonar Ali Larijani hafi verið afturkallað. Hvorugt er lengur í Bandaríkjunum og verður ekki heimilað að koma þangað aftur. Larijani var yfirmaður öryggisráðs Íran og drepinn í loftárás Ísraelshers 17. mars. Rubio sagði í færslu á X Trump-stjórnina ekki heimila að Bandaríkin verði griðastaður útlendinga sem styðja hryðjuverkastjórnir andvígar þeim. Qaseem Soleimani var hæst setti herforingi Írans og fór fyrir Quds-sveitum byltingarvarðarins sem bera meðal annars ábyrgð á aðgerðum utan landsteinanna. Soleimani var ráðgjafi og trúnaðarvinur æðstaklerksins Ali Khameneis og var drepinn að fyrirskipan Donalds Trump á seinasta ári fyrri forsetatíðar hans.

Go to News Site