Collector
Konungsfjölskyldan sögð í ákveðinni klemmu vegna dætra fallna prinsins Andrews | Collector
Konungsfjölskyldan sögð í ákveðinni klemmu vegna dætra fallna prinsins Andrews
Fréttastofa RÚV

Konungsfjölskyldan sögð í ákveðinni klemmu vegna dætra fallna prinsins Andrews

Nokkrir sérfræðingar í málefnum bresku konungsfjölskyldunnar segja hana eiga að fjarlægast Eugene og Beatrice, dætur fyrrverandi prinsins Andrew Mountbatten-Windsor , enda tengdust þær kynferðisbrotamanninum J effrey Epstein líka. Óviss framtíð þessara dætra Mountbatten-Windsor og Söruh Ferguson, hefur valdið bresku hirðinni nokkru hugarangri undanfarið. Hún staðfestir þó að þær haldi prinsessutitlum sínum en Karl konungur svipti bróður sinn og föður þeirra öllum vegtyllum í október vegna tengsla hans við kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein. Á daginn hefur komið að hann bauð mæðgunum í heimsókn aðeins viku eftir að hann var látinn laus úr fangelsi 2009. Það veldur vanda og kveikir erfiðar spurningar að mati Ed Owens, sérfræðings um konungsfjölskylduna. Systurnar hafi ferðast fyrir skattfé og byggt upp víðfeðmt tengslanet sem runnið hafi undan rifjum Epsteins, segir Andrew Lownie, höfundur ævisögu Andrews. Þeir telja báðir að hirðin ætti að fjarlægjast systurnar, enda ekki útilokað að fleiri hneyksli komi upp á yfirborðið. Bresku blöðin hafa fjallað mikið um hvernig samskipti þeirra við konungsfjölskylduna verða eftir að faðir þeirra var sviptur öllum titlum og ýtt til hliðar. Andrew var handtekinn í febrúar grunaður um misferli í opinberu starfi. Hann hefur ætíð neitað allri sök. Þeim hefur aldrei verið ætlað mikið hlutverk út á við en þær eru nákomnar ríkisarfanum Vilhjálmi og Harry bróður hans og virkar í innri hring fjölskyldunnar. Systurnar voru viðstaddar guðsþjónustu á Sandringham-setrinu um liðin jól en verða ekki í páskaboði konungsfjölskyldunnar. Þótt þær segist sjálfar hafa skipulagt páskana öðruvísi með fjölskyldum sínum staðhæfir Richard Fitzwilliams, enn einn sérfræðingurinn í málefnum konungsfjölskyldunnar, að hún vilji í rauninni helst ekkert af þeim vita.

Go to News Site