Collector
„Er ekkert hægt að gera til að stöðva þetta brjálæði?“ | Collector
„Er ekkert hægt að gera til að stöðva þetta brjálæði?“
Fréttastofa RÚV

„Er ekkert hægt að gera til að stöðva þetta brjálæði?“

Egyptinn Mohamed El-Baradei, fyrrverandi yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, biður Persaflóaríki, Sameinuðu þjóðirnar, Evrópusambandið og Emmanuel Macron Frakklandsforseta um að koma í veg fyrir hótanir Donalds Trumps Bandaríkjaforseta um að „láta eldi og brennisteini“ rigna Íran. „Ég bið ykkur, einu sinni enn, gerið allt sem þið getið áður en þessi brjálæðingur breytir svæðinu í logandi víti,“ skrifaði Mohamed El-Baradei á samfélagsmiðilinn X, og merkti framangreind auk utanríkisráðuneyta Kína og Rússlands. Trump setti Íransstjórn afarkosti í gær með því að gefa henni tvo sólarhringa til þess að semja um frið eða opna siglingaleiðina um Hormússund, ella verði innviðum Írans gereytt. Hann gaf Íran þá kosti að semja eða opna sundið 26. mars og ítrekaði í gær að tíminn væri senn á þrotum. Íransher virðist gefa lítið fyrir hótanir Trumps. Talsmaðurinn Ebrahim Zolfaghari beindi orðum sínum til Ísraela og Bandaríkjamanna í gær og sagði „svæðið allt verða helvíti á jörðu“, yrði árásum fram haldið. Hershöfðinginn Ali Abdollahi Aliabadi tekur í sama streng og segir hótanir forsetans ógáfulegar, fullar örvæntingar og gerðar í æsingi. „Er ekkert hægt að gera til að stöðva þetta brjálæði?“ skrifaði El-Baradei, sem stjórnaði Alþjóðakjarnorkumálastofnunni frá 1997 til 2009. Á þeim tíma hófst opinber deila um kjarnorkuvopnaáætlun Írans. Mohamed El-Baradei og stofnunin fengu friðarverðlaun Nóbels 2005 fyrir að stuðla að friðsamlegri notkun kjarnorku. Trump segir marga háttsetta yfirmann Íranshers liggja í valnum Þrír voru drepnir í loftárásum Bandaríkjahers í norðvesturhluta Írans í gær, ekki langt frá landamærunum að Aserbaísjan. Þrír særðust í árásinni hafði íranska Tasnim-fréttaveitan eftir yfirmanni öryggismála í Ardabil-héraði. Trump Bandaríkjaforseti sagði marga háttsetta yfirmenn í Íransher liggja í valnum eftir stórfellda loftárás á höfuðborgina Teheran. Stjórnvöld í Kúveit segja stjórnarbyggingu í höfuðborginni stórskemmda eftir drónaárás Íranshers. Enginn er sagður hafa látið lífið eða slasast. Her landsins kveðst hafa bægt frá fjölda flugskeyta og dróna, sendum frá Íran. Ísraelsher segir Írani einnig hafa skotið eldflaugum að Ísrael í nótt.

Go to News Site