Collector
Lögregla hvetur fólk til að fara fyrr af stað á morgun | Collector
Lögregla hvetur fólk til að fara fyrr af stað á morgun
Fréttastofa RÚV

Lögregla hvetur fólk til að fara fyrr af stað á morgun

Lögreglan á Norðurlandi vestra hvetur ferðamenn til að huga að því að fara fyrr af stað á milli landshluta á morgun, annan í páskum, eða að fresta ferðum sínum fram til þriðjudags. Slæm veðurspá er fyrir landið allt á mánudag og hafa gular viðvaranir verið gefnar út fyrir allt landið. Með morgninum verða gefnar út staðbundnari viðvaranir. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu má einnig reikna með því að gefnar verði út appelsínugular viðvaranir fyrir einhver svæði. Viðvörunin tekur gildi klukkan átta í fyrramálið og er í gildi til klukkan fjögur aðfaranótt þriðjudags. Í dag er von á norðaustan 8 til 15 metrum á sekúndu og lítilsháttar él norðan- og austantil. Suðvestanlands er hægari vindur og þurrt að kalla. Hiti víða 0 til 5 stig. Vegir eru víða lokaðir eða ófærir á Norðaustur- og Austurlandi í morgunsárið - meðal annars Mývatns- og Möðrudalsöræfi, Vopnafjarðarheiði, Hófaskarð, Vatnsskarð eystra og Fjarðarheiði. Á umferdin.is segir að hafist verði handa við mokstur fljótlega. Hvellurinn á morgun Á morgun gengur í austan á 18-28 m/s. Hvassast er syðst, en hægari vindur norðanlands fram eftir degi. Spáð er talsverðri eða mikilli snjókomu, einkum sunnan- og austantil. Um kvöldið hlýnar smám saman og þá tekur að rigna sunnantil. Búast má við talsverðum samgöngutruflunum og versnandi akstursskilyrðum og er fólk er hvatt til að sýna aðgát og fylgjast með veðurspám.

Go to News Site