Collector
Annar floti með neyðarbirgðir leggur senn upp til Gaza | Collector
Annar floti með neyðarbirgðir leggur senn upp til Gaza
Fréttastofa RÚV

Annar floti með neyðarbirgðir leggur senn upp til Gaza

Um það bil tuttugu franskir bátar lögðu upp frá hafnarborginni Marseille í gær og verða hluti alþjóðlegs flota sem hyggst á ný rjúfa hafnbann Ísraelsríkis og koma hjálpargögnum til Gaza. Eitt af skipum Sumud-flotans sem hélt til Gaza á seinasta ári.EPA / TONI ALBIR Alþjóðlegi Sumud-flotinn, um hundrað fley, leggur að stærstum hluta af stað frá spænsku borginni Barcelona 12. apríl. Vikulangt stopp verður á Ítalíu til þjálfunar og að því búnu verður siglt í átt að Gaza-strönd, að sögn skipuleggjenda. Ísraelski sjóherinn stöðvaði seint á síðasta ári för flota með hjálpargögn til Gaza og handtók skipverja sem margir voru heimsþekktir, þeirra á meðal sænska andófskonan Greta Thunberg.

Go to News Site