Collector
Ástandið verra á Fjarðarheiði en talið var | Collector
Ástandið verra á Fjarðarheiði en talið var
Fréttastofa RÚV

Ástandið verra á Fjarðarheiði en talið var

Mokstur er hafinn á flestum leiðum á Norðaustur- og Austurlandi þar sem víða er lokað vegna ófærðar. Búið er að opna um Mývatns- og Möðrudalsöræfi og Vopnafjarðarheiði. Samkvæmt upplýsingum frá Vegagerðinni gengur mokstur víðast hvar vel - en á Fjarðarheiði er ástandið verra en áður var talið. Opið er um Fagradal, en þar er óvissustig í gildi vegna snjóflóðahættu. Unnið er að mokstri.RÚV / Kristinn Þeyr Magnússon

Go to News Site